Miðhúsavatn.

MIÐHÚSAVATN

Miðhúsavatn er í Breiðavíkurhreppi á Snæfellsnesi. Það er 1,8 km², dýpst 2 m og í 1 m hæð yfir sjó. Lágt rif er milli vatnsins og sjávar. Til Miðhúsavatns dragast nokkrir smálækir, Hamraendalækur, Hraunlækur og Grafará.

Frárennsli þess er um Grafarós. Í vatninu er sjóbirtingur. Það þykir sumarfagurt við Miðhúsavatn og grónir hraunbollar eru vinsælir næturstaðir. Vegalengdin frá Reykjavík er um 230 km um Hvalfjarðargöng og 116 frá Borgarnesi.

 

Ekki er skipulögð veiðileyfasala í vatnið, en netaveiði nokkuð stunduð af eigendum.  Reyna má þó að tala við bændur á Miðhúsum um leyfi til að renna þar.

Veiðitölur sumarið

Dags. Lax Silungur Stangir
Engar tölur hafa borist

Lokatölur síðustu ára

Ár Lax Silungur
Engar tölur skráðar