VATNSHOLTSVÖTN
Vatnsholtsvötn eru tvö samliggjandi vötn, samtals 57 ha, í Staðarsveit. Þau eru 0,6 km², dýpst 4 m og í 6 m hæð yfir sjó. Þjóðvegur 54 liggur sunnan við þau. Veiðileyfin gilda í þau bæði og fjöldi þeirra er ekki takmarkaður. Þar veiðist bleikja og urriði auk sjóbirtings í ágúst.
Frekar lítið veiðist af urriða, en allt að 10 bleikjum á dag. Bleikjan er oftast u.þ.b. 300 gr. upp í tvö pund og urriði og sjóbirtingur u.þ.b. 2 pund, þótt stærri fiskar séu til. Best er að veiða bleikjuna með flugu og maðki en urriðinn tekur helst maðk og spón. Sjóbirtingurinn tekur helst spón.
Vatnsholtsvatn eystra.
Veiðileyfi fást á bæjunum Vatnsholti (435-6726) og Votalæk. (435-6821) Veitt er allt árið í vötnunum. Hægt er að fá leigðan bát þar.
Vegalengd frá Reykjavík er 172 km um Hvalfjarðargöng og 98 km frá Borgarnesi