Langavatn í Staðarsveit.

LANGAVATN

Langavatn er í Staðarsveit í Snæfellsnessýslu. Það er 0,8 km², dýpst 4 m og er í 12 m hæð yfir sjó. Ekkert vatn rennur til þess á yfirborði en úr því rennur Kræknalækur til sjávar.


Þjóðvegur nr. 54 og Ölduhryggur liggja sunnan vatnsins, en hann er forn sjávarkambur.  Nokkuð er af fiski í vatninu, urriði upp í 2-3 pund. Vegalengdin frá Reykjavík er 196 km og 80 frá Borgarnesi.

Veiðitölur sumarið

Dags. Lax Silungur Stangir
Engar tölur hafa borist

Lokatölur síðustu ára

Ár Lax Silungur
Engar tölur skráðar