Staðará og Hagavatn

Staðará. 

Staðará í Staðarsveit á Snæfellsnesi hefur lengi verið þekkt sjóbirtingsá og auk þess er þar nokkur laxveiði og stundum gott um bleikju.  Sjóbirtingurinn er þó yfirgnæfandi og áin þar með sett hér í hóp silungsánna.  Upptök sín á Staðaráin í Hagavatni ásamt lækjum ofan úr fjallgarðinum, en í þeim er nokkur von um bleikjuveiði. 

 

Útrennsli Hagavatns heitir Netá.  Þar og í vatninu sjálfu er góð fiskgengd, en vegna gróðurs hentar vatnið best til netaveiða.  Sjóbirtingsveiðin er best neðan til í Staðaránni, helst alveg niðri við ós.  Þó er nokkur von á birtingi um alla ána.

 

Ábúendur á Staðarstað og Tröðum ráða mestum hluta árinnar, frá ósi og uppundir ármót Netár.  Sá kafli er í fastri útleigu og ekki seld veiðileyfi á almennum markaði.  Tvær aðrar jarðir, Álftavatn og Ölkelda eiga þó sinn spottan hvor og hafa selt veiðileyfi hvor á sínu svæði.  Sími á Álftavatni er 435-6695, og á Ölkeldu 435-6724 eða 435-6718.

 

 

 

 

                                                                 Við bráðabirgðabrú 2003.

Veiðitölur sumarið

Dags. Lax Silungur Stangir
Engar tölur hafa borist

Lokatölur síðustu ára

Ár Lax Silungur
Engar tölur skráðar