Elliðaárnar.

 

Svo langt aftur, sem sögur ná, hefur farið mikið orð af laxgengd í Elliðaánum.  Litlu virtist skipta hvernig með þær var farið, hvort þær voru þverlagðar netum eða lokað með kistum og hverskyns veiðivélum, stofninn virtist þola þetta allt.  Jafnvel virkjun og stíflugerð þoldi hann lengi vel án þess að láta verulega á sjá.  Og mörgum erlendum ferðamanninum hefur verið sagt að Reykjavík væri sú eina höfuðborg í heimi, sem hefði slíka perlu innan sinna vébanda.  Með vaxandi byggð og aukinni mengun hefur þó sigið mjög á ógæfuhliðina hin síðustu ár.  Borgaryfirvöld mættu gjarna gera meira til að varðveita þetta dýrmæti, sé þeim svo annt um það sem látið er í veðri vaka á góðum stundum.

 

Frá ósum sínum í Elliðavogi og upp í Elliðavatn er áin 6 km. að lengd.  Þar fyrir ofan taka svo við Hólmsá og Bugða og eru þær sínu lengri.  Vatnasviðið er talið 280 ferkílómetrar, en erfitt er að segja nákvæmlega til um slíkt, þar sem uppsprettuvatn ánna gæti verið mun lengra að komið.  Meðalveiði í Elliðaánum frá 1978 til 2004 er 1148 laxar.  Mest gáfu þær árið 1975, þá 2071 lax, en þrisvar hafa þær farið yfir 2000 laxa markið á þessum tíma.  Minnst varð veiðin 414 laxar árið 2001.  Undanfarin 4 ár (2005-'08) virðist veiði heldur vera að batna.  Meðalveiði þeirra er 1062 laxar. 

 

Stangaveiðifélag Reykjavíkur leigir árnar af Reykjavíkurborg.  Lengi vel var aðsókn slík að brugðið var á það ráð að selja aðeins hálfa daga, svo sem flestir kæmust að.  Þeim sið er enn haldið þó dregið hafi úr aðsókn með minnkandi veiði.  Sími SVFR er 568-6050, netfang svfr@svfr.is og veffangið www.svfr.is 

 

(Síðast breytt 2009)

 

Veiðitölur sumarið

Dags. Lax Silungur Stangir
23. jún.354
30. jún.1244
7. júl.3556
14. júl.5766
21. júl.6986
27. júl.8086
4. ágú.8976
11. ágú.9826
18. ágú.10606
25. ágú.11006
1. sep.11416

Lokatölur síðustu ára

Ár Lax Silungur
2009880
200814570
2007936
2006925
2005954
2004645
2003472
2002478
2001414
2000592