Sog - Ásgarður.
Ásgarðssvæðið nær frá veiðisvæði Syðri Brúar niður að Álftavatni. Þar er leyfð veiði á þrjár stengur. Gott veiðihús er á svæðinu. Svæðið er þekkt fyrir væna laxa. Rétt er að geta þess að þarna er stríður straumur, auk þess sem vatnshæð getur breyst skyndilega vegna rennslisbreytinga í virkjunum ofar í ánni. Veiðimenn skyldu því fara varlega og gjarna nota björgunarvesti ef langt er vaðið út.
Leigutaki og söluaðili veiðileyfa er Stangaveiðifélag Reykjavíkur, sími 568-6050. Netfang svfr@svfr.is Heimasíða www.svfr.is